Heimasíða Helga Arnars Alfreðssonar
  • Home / Heim
  • CV / Ferilsskrá
  • Publications / Ritskrá
  • Interests / Áhugamál

Dagbókin

Vetur á Nýja Sjálandi / Sumar á Íslandi

14/1/2013

 
Við flúðum hluta úr síðasta vetri hér á Nýja Sjálandi og fórum í nokkra vikna heimsókn, heim á Frón. Ekki var það þó vegna veðurs, sem var frekar milt þetta árið. Og þó, fyrir vetrinum finnur maður aðallega innandyra, þar sem húsin eru flest hver illa einangruð hér syðra og því oft á tíðum sami hiti inni og úti. Vöknuðum við oft á morgnana í um 5 gráðum, svo maður varð bara að vera fljótur að gúffa í sig grautinn og fara út í sólina til að hlýja sér!
En Íslandsferðin gekk mjög vel í alla staði, og gott að fá smá frí í faðmi fjölskyldu og vina. Hérna koma nokkrar myndir sem lýsa vel vetrinum á Nýja Sjálandi og sumrinu heima á Fróni á s.l. ári. Margt er líkt með löndunum tveimur, en við fórum til Íslands í byrjun júní á fyrstu dögum vetrar, úr 12°C og rigningu og lentum í Reykjavík í 12°C og skúraveðri. Hér fylgja nokkrar myndir:
Picture
Ær með tvö lömb á Kjalvegi, í júlí.
Picture
Kindur á beit við Taupo, í ágúst.

Comments are closed.
    Picture

    Helgi Arnar

    Skagfirðingur

    Archives

    March 2013
    January 2013
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    November 2011

    Categories

    All
    Nýja Sjáland

    RSS Feed

    Myndirnar á flickr


    _© Helgi Arnar Alfredsson
    Please respect copyright.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Home / Heim
  • CV / Ferilsskrá
  • Publications / Ritskrá
  • Interests / Áhugamál