Skin og skúrir einkenndu janúar hjá okkur á Birkistræti í Taupo, bæði tilfinningalega og veðurfarslega. Við reyndum þó að gera það besta úr öllu saman og nýta góðu dagana sem best. Fórum við mikið á strandir Taupo vatns þegar viðraði vel. Við gengum umhverfis Grænsteinsvatn (Rotopounamu) í Tongariro þjóðgarðinum. Ekkert afrennsli er úr vatninu og í rigningunum undanfarið hækkaði mikið í vatninu og því varð megnið af göngutúrnum frekar blautur. Rúntuðum einn laugardaginn til Rotorua í norðri. Bærinn byggðist upp við jarðhitasvæði og fann maður gamla góða brennisteinsfnykinn í miðbænum. Endaði mánuðurinn svo á óvæntri heimsókn. Halldór litli rak augun í gestinn yfir morgunmatnum, en þá var hann, um tveggja sentímetra langur, sitjandi á einum stólnum við matarborðið. Kakkalakkar, þessi ~300 milljón ára gamla dýrategund er með þeim elstu núlifandi á jörðinni og eru þau gríðarlega lífseig kvikindi. Því hafði ég það ekki í mér að drepa greyið og sleppti því lausu úti. Comments are closed.
|
Helgi Arnar
Skagfirðingur Archives
March 2013
CategoriesMyndirnar á flickr
_© Helgi Arnar Alfredsson
Please respect copyright. |